Pensamientos

Bienvenido

29.03.2008 12:17:47 / Andrea

Nýjar myndir

Var að setja inn nýjar myndir
http://picasaweb.google.com/andreapalina

Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 09:51:10 / Andrea

Elsku afi minn

Sturla Halldórsson
F.13.07.1922 D.01.03.2008
Hvíl í friði elsku afi


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 22:11:31 / Andrea

Liðið ár

 

Þó að það sé vel liðið á janúarmánuð ætla ég að reyna að rifja upp síðasta ár.

Janúar

Árið byrjaði vel hjá mér því ég fór í útskriftarferð til New York. Langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel eins og í þessari ferð. Mikið var brallað í þeirri ferð og eignaðist ég góðan vin í þeirri ferð og ber hann nafnið Corona og er spænskur hehehehehe:)

 

Lifi enn á þessum snilldar minningum

Restin af mánuðinum fór nú bara í að reyna komast í skólagírinn aftur.

Febrúar

Ekki gat ég leyft þessum mánuði að líða hjá án þess að skreppa í smá utalandsferð. En þá fórum við nokkrar kellur í verslunar og skemmtiferð til Glasgow yfir eina helgi. Má alveg segja að þrátt fyrir gífurlega eyðslu í fyrstu ferð ársins þá gaf ég ekkert eftir í búðunum í Glasgow:lol:

img216/781/pict1669jz3.jpg

Enn hélt skólinn áfram og var því komin tími á að skella sér í gírinn enn eina ferðina. Strembnir mánuðir framundan þar sem skvísan var á síðustu önninni. BS ritgerðin gerði sér vetursetu í mína tilveru um það bil í þessum mánuði:evil:

Svo var bara skóli skóli skóli ásamt NY hittingum og upprifjun á góðum NY minningum

Mars

Minni mitt segir mér að snjórinn hafi verið kominn á þessum tíma og því hafi við hjúin verið nokkuð dugleg að skreppa út í bústað á sleða. img216/5025/pict1828pr0.jpg

Gerðist ég barnapía í þessum mánuði og fékk ég að kynnast honum Gabríel vini mínum nokkuð vel. Mjög skemmtilegur tími það:D

Apríl

Páskarnir eru mér í fersku minni þar sem ég ákvað að dvelja á Ísafirði að þessu sinni. Þrátt fyrir að erfiðlega gekk að komast til og frá dvalarstað þá voru þetta fínustu páskar. Uppgvötaði ég snilldar hátíð sem ber heitið Aldrei fór ég suður og er ég nokkuð ákveðin í því að sækja hana heim á þessu ári. Einnig kíkti ég á bretti fyrir vestan en þar sem 6 ára frænka mín nefndi við mig að ég væri ekkert rosa góð hefur brettið aðeins safnað ryki síðan þá;)

Lítil prinsessa kom í heiminn í Danaveldi hjá Ósk og Gauta.

Hér var magasárið sökum BS ritgerðar að fara með mig sem og samstarf mitt við leiðbeinanda minn. Guð sé lof að því er lokið;)

Jóhann afi minn kvaddi þennan heim í apríl, fórum við austur til að kveðja hann.

Maí

Við tóku síðustu próf HA, gengu þau nokkuð vel að eigin sögn og loksins gat ég losað mig við mikla birgði og var það blessaða ritgerðin mín!!!

Eftir þá törn skrapp í sæluna í sveitinni og tók þátt í sauðburði, jú spennandi var það og fannst mér ég bara standa mig með ágætum;)

img143/4403/pict1940yr4.jpg

Við hjúin urðum nú að fara smá af landi brott og varð London fyrir valinu að þessu sinni. Fórum við í þeim tilgangi að hitta hann Andra og versla eilítið. Upp úr krafsinu kom að kallinn er ekki síðri en ég í búðunum. Þar sem hann var að fara að byrja nýrri vinnu varð hann aðeins að lappa upp á fataskápinn sinn en byrjaði hann að vinna hjá Glitni í lok mánaðarins:) img143/827/pict1960bx3.jpg

Júní

Í byrjun mánaðar útskrifuðumst við Alli úr Háskólanum á Akureyri. Alveg ótrúlegt að liðin eru 3 ár síðan við byrjuðum í skólanum. Á ég margar góðar minningar frá þessum árum og marga góða vini:)

img143/2710/pict2080il6.jpg

Hér tók alvara lífsins við..... vinnan hjá FÍ. En loksins losnaði undan vaktavinnunni og vann aðeins 8-16 þvílík snilldJ

Í byrjun mánaðar skrapp ég suður til að taka þátt í gæsun Dillu frænku. Og síðar í mánuðinum fórum við austur í brúðkaup hennar og Þorvaldar.

Einnig tók ég þátt í gæsun Óskar. Heppnaðist hún mjög vel og þvílíkt veður þann dag, alveg frábært.:)

Júlí

Mikið var á dagskránni þennan mánuð.

Ása átti afmæli og hélt stærðar partý.

Brúðkaup hjá Ósk og Gauta ásamt skírn skvísunnar sem fékk nafnið Ísabella Ósk

img138/7572/pict2194fx6.jpg

img218/263/pict2212ix0.jpg

Afmæli afa á Ísafirði í frábæru veðri, öll familian saman komin.

img220/74/pict3109xu5.jpg

Sveitasæla og reiðtúrar.

img220/8050/pict3266zd6.jpg

Ágúst

Verslunarmannahelginni var eytt að mestu í sveitinni. En einnig fórum við í smá túristaleik en Carime vinkona okkar frá USA var í heimsókn og auðvitað reyndum við að standa okkur vel í að sýna henni helstu náttúruperlur Norðurlands. Meðal annars fórum við í Mývatnssveit og út í Grímsey.

img138/2486/pict2296ri2.jpg

Fór ég aftur út í Grímsey seinna í mánuðinum þar sem sumarslútt vinnunar var haldið. Frábær dagur.:)

Lítil skvísa kom í heiminn hjá Erlu og Sigga, hlaut hún nafnið Karen Sif. Einnig kom lítill frændi í heiminn sem fékk síðar nafnið Jón Andri.

Endaði mánuðirnn svo á að fara í sjóstöng.

September

Hér gekk í garð dálítið skrítinn mánuður, ég var án vinnu!! Sem betur fer hafði ég nóg að gera. Tengdó keypti sér eitt stykki fjórhjól og því voru ferðirnar í bústaðinn tíðar þennan mánuð.

Enn og aftur fór í sveitina þar sem göngur gengu í garð, nokkuð erfiðar að þessu sinni. Ég ákvað að staldra aðeins við í sælunni á tók við ýmis sveitastörf, sem ég fílaði alveg í tætlur;)

Í lok mánaðar var ég svo komin með vinnu hjá Sagacapital ekki hægt að vera ánægðari með það. En áður en ég byrjaði fórum við hjúin suður til að æfa okkur í foreldrastörfum og tók það nokkuð vel á en skemmtum okkur konunglega.:D

Október

Tók við ný vinna og nýjum vettvangi. Mikið að læra í nýju vinnunni og mikil vinna en alsæl.

Jón afi minn kvaddi þennan heim, hálfu ári nánast upp á dag á eftir bróðir sínum. Skrítinn þessi heimur.:$

Nóvember

Gátum ekki látið árið líða án þess að fara í eina enn utanlandsferð og enn og aftur fórum við til London. Fínasta ferð sem snerist um að slappa af, borða góðan mat og versla.

Jólahlaðborðin tóku við. Fyrst var það á Friðrik V, fæ bara vatn í munninn að hugsa um það og mikið djamm í framhaldinu. Því næst á Hótel Kea þar sem ég náði að borða yfir mig. Og að lokum hjá Bautanum.
Bættist heldur betur í familíuna í Skriðugili því kallinn keypti sér sleða;)img84/593/allije1.jpg


Desember

Undirbúningur jólanna. Seldum Lexusinn og keyptum okkur glænýjan Subaru. Góð skipti þegar maður er orðin svona old;)

 img84/2350/subpi4.jpg

Lá í veikindum í heila viku.

Fékk yndislegan dreng í afmælisgjöf hann Guðmund Inga þeirra Heiðu og Dadda.

Jól og áramót gengu í garð sem voru haldin í faðmi fjölskyldunnar.

Ef það er e-ð sem ég gleymdi þá nefnið þið það bara en annars takk fyrir að nenna að lesa þetta allt.

Hér getið þið séð í formi mynda hvernig árið var hjá mér og mínum. Svo virðist sem myndavélin hafi verið lítið á lofti í lok árs;)

http://picasaweb.google.com/andreapalina

Sjáumst.

P.S lofa engu um næsta blogg;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 12:53:48 / Andrea

Jóla hvað....

Er að stelast í vinnunni til að hripa niður nokkrar línur:)

Hafiði áttað ykkur á því hvað er stutt til jóla?? OG þar að leiðandi ennþá styttra í afmælið mitt:$ Díses hvað maður er að verða OLD!!!;) En jæja það þýðir ekkert að svekkja sig á því. Ég hugsa að maður sé eins og rauðvínin, maður verður betri með aldrinum;)

En jæja best að segja frá því hvað hefur drifið á mína daga undanfarin mánuð.

Við skruppum í helgarferð til London í byrjun nóvember. Ferðin var alveg frábær í alla staði. Náði að versla aðeins, vinnudress, jólagjafir og fleira:) Annars var þessi ferð bara hálfgerð slökun, sukkuðum í mat, sváfum út þrátt fyrir blessaða gaurinn sem vildi ólmur þrífa herbergið okkar sama hvað við neituðum oft heheh:) Svo auðvitað hitti ég bissness gellununa mína hana Söru. Sátum heillengi á besta kaffihúsi í heimi (að mínu mati), Starbucks;) Þarf eiginlega að fá svona stað hingað! En anyways, þar var mikið spjallað og slúðrað af okkar einskærri kunnáttu!!;)

Svo hefur maður bara verið að vinna hörðum höndum undanfarnar vikur. Vinnan verður alltaf skemmtilegri og skemmtilegri þegar maður kemst meira inn í allann pakkann og fer að kynnast fólkinu betur.. Sem mér tókst núna um helgina því þá var jólahlaðborð hjá okkur. Allir voru rosa dannaðir á Friðrik V og by the way maturinn þar var geggjaður!! En því næst lá leiðin á Græna hattinn til að hlusta á Hvanndalsbræður. Snilldar band!! En þá breyttust leikar, allir voru e-ð svo rosa þyrstir að fjörið færðist í aukana heldur betur;) Svo var farið á Amor og því næst niður á Vélsmiðju. Semsagt ég sem ætlaði að fara heim ca um miðnætti kom heim klukkan 4!! En eftir ótrúlega skemmtilegt kvöld með vinnufélugunum:D Dáldið fyndið að mæta hér til vinnu á mánudaginn, allir að reyna að rifja upp hvað þessi og hinn gerði, sumir með móral aðrir ekki:D

Framundan er svo jólahlaðborð með Glitni og hjá Flugfélaginu. Svo þarf maður að finna sér tíma til að baka, klára jólagjafakaupin og skrifa jólakort. Og vá hvað ég er fegin að desember fer ekki að þessu sinni í prófalestur. Fæ bara gæsahúð þegar ég heyri af e-m í prófalestri:S  Samt er ég búin að skrá mig í nám eftir áramót í verðbréfamiðlun, verður örugglega spennandi og gaman að geta sett þetta á ferilskrána:)

Tilhlökkunin til jólanna hefur aðeins aukist þar sem ég var nú bara dugleg um helgina og setti upp jólaljósin. Núna vantar bara snjóinn!!!:)

En jæja þetta er nóg í bili best að halda áfram að vinna!

Sjáumst.

P.S. Skráði í Bootcamp sem byrjar 3.des hefur e-r áhuga á að koma með mér????

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 21:56:58 / Andrea

Nýjar fréttir

Ég er að verða alltof löt við þetta!!!8|

Ekki er hægt að segja að okkur hjúum hafi leiðst síðastliðin mánuð. Eiginlega hafa flestar helgar í sept og okt verið bókaðar. Ég tók nú tvær helgar í að fara í göngur í sveitinni. Þær voru frekar erfiðar sérstaklega fyrstu göngur. Maður kom heim blautur og vel kaldur eftir 12 tíma báða dagana. En þetta hafðist:)

Því næst skruppum við suður til að hjálpa brósa við að passa börnin hans. Þau ákváðu að skreppa til Berlín og stukkum við á það tækifæri að æfa okkur fyrir komandi framtíð. Hehe þetta var gaman en ég verð eiginlega að segja að þetta hafi líka verið dáldið erfitt. Héðan í frá ber ég fulla virðingu fyrir foreldrum. Ekki erum við mjög vön því að ná ekki heilum nætursvefni og hvað þá að vakna fyrir sjö á morgnanna þannig við vorum dauðþreytt eftir helgina. En þetta var mjög lærdómsríkt og stóðst Alli þokkalega prófið, hann er allaveganna ekki stungin af né búin að taka sig úr sambandi;) Tekur hann sig ekki bara vel út;)

img88/2797/pict2433te4.jpg

Hér er hann með nýju vinkonu sinni:) Eftir þessa helgi er hann kominn í topp 5 á vinsældarlista Unu;)

img148/1690/pict2435pk7.jpg

Helgin þar á eftir byrjaði eiginlega á hálfgerður vinnudjammi, ekki slæmt að byrja fyrstu vikuna í vinnunni á djammi. Lögfræðinemar úr HA voru í vísindaferð í Sagacapital og ekki voru veitingarnar í verri kantinu. Og auðvitað allt fljótandi í rauðu og hvítu. Svo endaði kvöldið á að kíkja á tónleika á Græna hattinum. Ég er nú orðin svo léleg að ég stakk fljótlega af;) Svo snerist restin af helginni um skírnir, litla skottan hennar Erlu og Sigga var skírð Karen Sif og síðan prinsinn þeirra Mæju og Hnikarrs skírður Jón Andri.

Síðasta helgi fór síðan í aðra Reykjavíkurferð. Hún snerist um að kveðja hann afi minn en hann lést 13.október. Má eiginlega segja að hann hafi veikst snögglega en það er betra að hann hafi farið svona heldur en að þurfa að þjást eitthvað. Hvíl í friði elsku afi minn.

Á milli helganna hef ég náttla verið að vinna og mér finnst það bara geggjað. Nóg eftir að læra en mér finnst þetta ekkert smá gaman. 

Ótrúlegt en satt þá er ekkert plan um helgina og mér finnst það bara fínt. Bara sofa út og njóta þess að gera ekki neitt:)  Vonandi eiga allir góða helgi:)

Svo er London ferð framundan, dagsetning reyndar ekki alveg orðin föst en það verður farið í nóvember:)  

 Jæja ég hætt þessu bulli

Heyrumst eða sjáumst:) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 13:31:11 / Andrea

Komin með vinnu:)

Jæja þetta hafðist!!:)

Iðjuleysingjalífi mínu verður hér með lokið eftir helgi:):):):):):):)

img204/9193/m11bj2.jpg

Ég var að fá þær fréttir að ég er búin að fá vinnu hjá SAGACAPITAL!!!!! Hvernig líst ykkur á það!!8)8)

Ég er svo ánægð að þið getið ekki ímyndað ykkur það!! Hlakka svo til að byrja hjá þeim og fara að byrja á e-u jafn krefjandi eins og starfið mun væntanlega verða!! Algjör snilld!! Akkúrat staðurinn sem ég er til í blómstra og þar á ég einmitt möguleika á að hækka í tign og launum. Ég næ ekki að þurrka brosið af andlitinu núna hhehehehehe:D

Góða helgi öllsömul:) 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 16:07:43 / Andrea

Sveitin kallar

Jæja

Frá og með laugardeginum 15.sept þá mun ég ekki vera í gsm sambandi í hálfan mánuð. Sný aftur í menninguna sunnudaginn 30. sept:) Ég ætla að skella mér í sveitina og reyna að gera e-ð að gagni:)

Ef þið viljið ná á mér þá getið þið bara hringt þangað:)

Sjáumst

P.S og skvísur takk fyrir gærkvöldið, alltof langt síðan síðast og vonandi ekki jafn langt þangað til næst:)

Andrea 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 13:29:43 / Andrea

Helgin í hnotskurn:)

Jæja

Í vinnunni í dag, sem er reyndar bara nokkuð gaman:)

En mig langaði að setja inn myndir frá því í gær. Við hjúin skruppum út í bústað, rosa gaman:) Þar var legið í leti og auðvitað klikkaði tengdó ekki á veitingunum. En toppurinn var auðvitað að prófa fjórhjólið hans tengdó. Rosa snilld var það, það er sko mjög auðvelt að fá dellu fyrir svona tækjum:)

Sjáiði hvað mín tekur sig vel út;)

 

img207/715/p9080161al5.jpg

Alli er bara á e-m kettling miðað við það sem ég er á;)

img256/7610/dsc01708kt6.jpg

Það er ekki slæmt landslagið í Skíðadalnum;)

img524/7060/p9080176ja6.jpg

img513/2898/p9080171ll2.jpg

Snilldar dagur í alla staði:) Þar sem kellingin tók sig svo vel út á hjólinu að það er spurning hvort kallinn sjái sér ekki bara fært að versla eitt svona handa henni;) ;);) Góð hugmynd finnst mér:haha:

Sjáumst

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 13:39:38 / Andrea

Hvað ber framtíðin í skauti sér????

Hædíhó

 Jæja þá er ég búin að vera heima í "fríi" í viku. Reyndar hef ég notið þess mjög að vera heima og sinna hlutum sem ég hef trassað við lengi. En ég er líka búin að sjá að þetta á ekki við mig!!! Jújú það er fínt að vera í fríi ef maður hefur e-ð fyrir stafni, en ekki ef maður er bara að hanga!

Já það er semsagt ekkert að gerast í atvinnumálum hjá mér, ekki spennandi það. Hvað er að gerast hér á Akureyrinni ef háskólamenntuð manneskja getur ekki fengið vinnu við sitt hæfi!!! Það er hálfpartinn verið að neyða mann til að flytja héðan, já því ef ekkert er farið að gerast eftir nokkrar vikur þá verð ég að gera það!!  Þetta er eiginlega fyrsti dagurinn þar sem ekkert er fyrir stafni og ég er bara alls ekkert að fíla það!!

Svo vona ég að ég móðgi engan með þessu en þetta svona finnst mér þetta bara. Ég hef mjög sterkar skoðanir varðandi atvinnuleysi og því tengdu. Ég sótti um atvinnuleysisbætur, þvert gegn mínum vilja og mér fannst það svo fyrir neðan mína virðingu að ganga þarna inn og sækja um!! Ofan á allt þá var skassið sem afgreiddi mig ekki upp á marga fiska og ég fór enn minna manneskja út fyrir vikið!! Toppaði allt í dag þegar ég þurfti að fara á e-n "#$&&& fund í dag með öðrum "iðjuleysingjum". Enn og aftur er það ekki ætlunin að móðga einn né neinn, mér finnst bara of mikið af fólki sem nýtir sér atvinnuleysisbætur á rangan hátt. Sumum finnst það meira að segja kúl og ég vil ekki vera stimpluð á sama hátt og "þetta" fólk!! Ég er búin að leggja á mig mikla vinnu til að komast í gegnum háskólann og ná mér í góða menntun sem ég hélt að myndi fleyta mér áfram í átt að góðri vinnu hér á akureyri en það virðist bara erfiðara en ég hélt!! HVAÐ ER AÐ GERAST!!!!??????

En ef litið er á björtu hliðarnar þá get ég nýtt þennan tíma minn í að fara í sveitasæluna og koma hestunum í smá þjálfun fyrir göngur. Heyrist að það veiti ekkert af því;) Og toppurinn er náttúrulega að fá að knúsa aðeins litla frænda minn sem kom í heiminn í ágúst:)

En jæja ég vildi bara koma þessu frá mér.

Sjáumst 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 11:26:54 / Andrea

Sumarið í hnotskurn

Jæja

Ég er farin að fá skammir úr öllum áttum fyrir leti á blogginu;) Er ekki alveg að trúa því að sumarið sé bara búið!! Ég tók einmitt eftir því á leið í vinnuna í morgun að sumsstaðar eru haustlitirnir komnir á tréin!! Ekkert spennandi!!8| 

Flestar helgar hjá okkur í sumar hafa verið fullsetnar af alls kyns afþreyingu. Ég byrjaði sumarið á að taka þátt í gæsun Óskar vinkonu, held við hefðum ekki getað fengið betra veður, sól og blíða. Greyið var sett í allskyns fatnað og látin fara í ratleik sem tókst bara ótrúlega vel. Svo var farið í smá skotkeppni upp á skotsvæði og þaðan í Abaco í slökun og borðum síðan saman. Æðislegur dagur í alla staði.

Við fórum í tvo brúðkaup í sumar og eina skírn. Litla skvísan þeirra Óskar og Gauta fékk nafnið Ísabella Ósk. Og af einlægri ósk Alla míns þá bað hann sérstaklega um að engin annar myndi ganga upp á altarinu í okkar vinahóp á þessu ári;) Tvö brúðkaup var alveg meira en nóg fyrir hann hehehe8)

Nú ég er búin að fara aðeins í sveitina og toppurinn á því er náttúrulega reiðtúrarnir. Vona að ég nái einum í viðbót áður en sumarinu líkur. Ég skrapp eina helgi til Ísafjarðar, afi gamli var 85 ára og hele familian hittist öll, það var þvílíkt fjör. Sumir þurfa ekki að fara til sólarlanda til að brenna því ég kom heim þaðan útlítandi eins og tómatur;) Ekki sérstakt.

Við fengum hana Carime vinkonu okkar frá USA í heimsókn í viku og þá settum við bara upp túristalúkkið og ferðuðumst aðeins hér í kring. Mývatnssveit, Grímsey, Dettifoss og fleira. Versló hjá mér fór í ferðamannaleiki, ásamt því að vera í góðu yfirlæti í sveitinni;) Sumir eru meira sveitó en aðrir;)

Um síðustu helgi var síðan sumarslútt í vinnunni og fórum við í útsýnisflug um norðurlandið og enduðum svo í Grímsey þar sem var grillað og frítt áfengi í boði. Því næst var farið í smá siglingu í kringum eyjuna sem var tær snilld!!!!:D  

Það eina sem ég hef ekki gert í sumar og það eina sem mig hefur mest langað til að gera í sumar er að fara erlendis!!!! Ég er að gera kallinn geðveikan, tuðandi daginn út og inn hvort við ættum ekki bara að skella þessu upp í kæruleysi og drífa okkur í smá stund út. En þar sem Aðalsteinn er orðinn bankastarfsmaður (A.K.A Herra Glitnir);) þá er búið að taka fjármálin okkar föstum tökum og ekkert bruðl skal ég segja þér!!! Dáldið skondið að fá skammir frá honum þessa dagana varðandi of mikla eyðslu!! :lol: 

Hvað vinnu varðar þá er ég í frekar lausu lofti, veit ekkert hvað ég geri í vetur. Þetta er mjög vond staða sem maður er í, að vita ekkert hvað mun gerast á næstu mánuðum. Ég er búin að vera nokkuð dugleg að sækja um en ekkert gerist. Ég fæ engin ákveðin svör hjá fyrirtækinu sem ég er hjá núna, bara “ætla að skoða það”, “kannski” og e-ð meira!!!! En eins og staðan er núna þá er ég ekkert að komast neitt ofar í fyrirtækinu þannig þetta er ekkert draumastarf. Mig farið að langa í jobb þar sem meira er krafist af manni!!!

Sumarið hefur semsagt einkennst að miklum hugsunargangi um hitt og þetta. Vinnu, framtíðina og fleira, sumt hefur meira að segja tekið sér bólfestu á litlum stað í heilanum í allt sumar en ég er að ná að bola því út!!;) Annars er bara allt við það sama hjá mér og mínum, við vinnum alla virka daga og notum helgarnar í allt annað en að hugsa um vinnuna;) Sumarbústaður er til dæmis mjög freistandi núna um helgina.

Vonandi eigið þið öll góða helgi framunda:)

En að lokum vil ég óska Erlu og Sigga til hamingju með prinsessuna og Mæju og Hnikari til hamingju með prinsinn. Hlakka til að sjá hann og knúsa og dekra;)Einnig langar mig að votta Söndru, Sverri og familíu mína dýpstu samúðarkveðjur. 

 Bless í bili, vona að næsta blogg verði ekki svona lengi á leiðinni;)  


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 10:30:37 / Andrea

Upprifjun

Jæja ætli það sé ekki komin tími á smá uppfærslu hér.

Mikið hefur nú verið í gangi síðan síðast. Nú við hjúin erum semsagt útskrifuð, ég er orðin löglegur viðskiptafræðingur og Alli hagþróunarfræðingur. Ég ætla bara að vera á flugvellinum í sumar og kallinn orðin bankastarfsmaður. Ég er nú bara að vonast til þess að hann fikri sig snögglega upp launalistann svo ég geti bara hætt að vinna og tekið lífinu með ró hihi;) HEHE þeir sem reyndar þekka til mín vita að ég gæti aldrei verið heima allann daginn og ekki unnið;) En alltaf gaman að prófa;)

Ég fínustu vaktir á vellinum, átti upphaflega að vera bara 8-16 en ég er nú oftast nær að vinna 9-11 tíma á dag!! Mér bara líkar það mjög vel, því ég á frí á kvöldin og um helgar:) Eins gott því svo virðist sem flestar helgar séu bókaðar í veislur eða ferðalög:) Óskin mín kom heim í gær og litla snúllan þeirra er náttla ekkert smá mikið krútt, hún náði allaveganna að bræða mig um leið:) En þau eru einmitt að fara að gifta sig 07.07.07 og hlakka ég ekkert smá mikið til, einnig eru þau að fara að skíra skvísuna og heyrst hefur að nafnið Andrea komi sterklega til greina blink blink;):D8)

Tímarnir samt fljúga áfram, áður en maður veit af er sumarið búið!!! En við hjúin erum alveg ákveðin í því að nýta sumarið í alls kyns afþreyingu;)

 Sjáumst8)

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 10:11:58 / Andrea

Veisla

 

Í tilefni þess að við hjúin erum að útskrifast úr HA verður kaffi í Rimasíðu 1, laugardaginn 9.júní.

Boðið byrjar væntanlega um 2 leytið.

Skvísur, makar og börn velkomin:)

 

Kveðja Andrea og Alli


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 23:56:05 / Andrea

London saga

Jæja Sara vildi fá London söguna en hér kemur hún:) Þetta er reyndar tilraun tvö því ég var búin að skrifa hana alla um dagin en nei þá ákvað blog.central að vera með e-r læti!!:evil

En þessi ferð var tær snilld enda ekki annað hægt með svona félagsskap;) Aðal tilgangur þessarar ferðar var að versla á drenginn, þar sem ekki gekk að hafa hann í allt of stórum lörfum í nýju vinnunni!!:) Well hann stóð sig vel í því, held að ég hafi aldrei kynnst öðrum manni sem hverfur í fatabúðum og sjá hann svo hverfa inn í mátunarklefa með fullt fangið af fötum. Ekki nóg með það heldur eyðir hann meiri tíma í mátunarklefa en konur!! (smá ýkjur hehe en nálægt því)

Ekki get ég sagt það sama með mig því ég kom mér mjög á óvart og missti mig ekkert í búðunum. Held að Alli hafi farið að hafa dálitlar áhyggjur undir lokin vegna verslunarleysis konunnar sinnar;) En ég náði mér þó aðeins á strik síðustu tvo dagana og viti menn fann útskriftardressið í síðustu búðinni sem ég fór í, síðasta daginn!!:D

En svona er ferðasagan.

Föstudag: bara leti og rólegheit um kvöldið. Undirbúningur fyrir laugardaginn.

Laugardagur: Oxford street, verð nú eiginlega að segja að þetta var ekki eins og ég bjóst við. Alltof mikið af fólki og alltof mikið af búðum:S En eins og áður sagði er Alli ekki að sama máli8)

Sunnudagur: Ætluðum að fara í Notting Hill á e-n markað og ég var sérstaklega búin að panta að fara í Travel Book Store sem var í myndinn Notting Hill en þar sem engin markaður var þennan dag var ákveðið að hafa daginn sem túristadag. Fundum loksins London Zoo, gaman að koma þangað og sjá vini sína hér og þar;) Því næst var farið í þennan típíska Sightseeing bus og allir helstu staðir skoðaðir á ferð og teknar myndir hér og þar;)

Mánudagur: Fórum á High street í Kensington auðvitað í þeim tilgangi að kíkja í búðir. Enn og aftur var það Alli sem stóð sig einna best!! Ef ég vildi fara í e-a búð þá endaði það alltaf á að Alli fann sér e-ð þar og ég ekki neitt!!:S

Þriðjudagur: Snilldar veður, 25 stiga hiti og sól!!!8) Enn og aftur var farið á Oxford og því næst í Camden sem stendur upp úr eftir þessa ferð. Í því hverfi er allskonar lið, og sjá dressið á sumum, algjör snilld hehe. Þar er að finna allskyns markaði og búðir sem selja fullt af drasli og ódýrum fötum og skóm!! Þar komst ég aðeins á strik hihi. Enduðum daginn svo á að hitta hana Söru mína tilvonandi viðskiptajöfur í London og auðvitað var farið á e-n pub til að fá sér smá öl:lol: Sem mér skylst að sé orðið daglegt brauð hjá henni hhhmmmm;) En algjör snilld að hitta hana og spjalla um allt og ekkert:)

Miðvikudagur: Enn og aftur frábært veður!:) Flugið var ekki fyrr en um kvöldið þannig að dagurinn fór í að versla það allra síðasta sem við töldum að væri alveg nauðsynlegt!!:)

Semsagt sagan í hnotskurn. Mjög mikið fun í alla staða enda ekki annað hægt með svona góðan gestgjafa:)

En nú er bara reality time! Vinna og vinna aðeins meira!:)

Að lokum vil ég bara minna á að 9. júní munum við Alli útskrifast að því tilefni ætlum við að hafa opið hús og bjóða upp á smá veitingar. Tíma og staðsetning er ekki alveg komið á hreint en ég læt ykkur vita:)

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni:)

Sjáumst 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 22:20:48 / Andrea

London baby:)

LONDON BABY!!!!:)

Það verður bara snilld næstu daga:) 

 

Sjáumst!!!!:) 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 23:12:54 / Andrea

HAFÐIST!!!;)

JÆJA þetta hafðist!!!

Skilaði lokaritgerðinni minni í dag!:):D:D Það var góður léttir en ég virðist samt ekki ná þessum stress hnút úr maganum á mér. Ætli hann sé ekki bara sestur að þarna, búin að vera þarna svo lengi8| En ég býst við því að hann verði þarna þar til ég hef fengið úr mínum prófum og soleiðis!!!:S 

Ég er bara að reyna að hugsa um e-ð annað eins og að ég sé að fara til London ef viku!!! Rosalega hlakka ég mikið til:):)

En á morgun ætlum við mæðgur að skella okkur í sveitina, taka þátt í smá sauðburði. Því ef þið vissuð ekki þá er ég pínu sveitó í mér, líður hvergi betur en í sveitinni;);)

 Góða helgi 

Sjáumst 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4